Það eru þessir morgnar...
Þegar dagurinn heldur að hann byrji fyrir sex, börnin halda að þríréttaður morgunmatur detti af himnum ofan, Freyja Björg heldur að hún sé Flash Gordon en Þórey heldur að hún sé fjögurra ára og geti hlaupið niður stigana, bílinn heldur að hann sé snjóhús, bílstóllinn hennar Úlfdísar að hann sé gestaþraut og bílastæðið að það sé Kjalvegur.
Og ég? Ég held ég sé bara með þetta, svona nokkurn veginn. Hlýtur það ekki að vera?
(...og þó hef ég ekki en minnst á niðurganginn, perluboxið sem hrundi í gólfið, eða þá staðreynd að sextán mánaða barnið byrjar að heimta "gjegó" [Diego] um leið og hún sest í bílsætið... já, það eru þessir morgnar.)