Síður

mánudagur, 29. júní 2015

Hetjuskapur

"Þú ert hvunndagshetja!" sagði nágranninn þar sem ég bisaði börnunum, hjóli, kerru og innkaupapoka út úr lyftunni. Og í nokkrar mínútur fannst mér ég eiga hrósið skilið, eftir að hafa dröslað þrem upptjúnuðum og volandi yfir ýmis konar mismunandi óréttlæti tvo hringi um hverfið í heldur mislukkuðum pylsukaupaleiðangri.

Það bráði samt fljótlega af mér og ég mátti hafa mig alla við að halda kúlinu, þar sem börnin slógust yfir tyggjópakka meðan ég kveikti á grillinu og leitaði hátt og lágt að pylsupakkanum sem hafði horfið í tauhrúguna á sófanum (eina af mörgum), reyndi að komast að því hvaðan ólyktin í eldhúsinu væri upprunnin, og steig tvisvar á rústirnar af plúskubbamannvirkinu sem búið var að dreifa um stofugólfið.

Hetjur eru sjálfsagt best geymdar í bókum.