1. Hoppa í rúminu. Þetta er næstum eins og að eiga nuddstól eða svona rúm með víbringi. Alveg þangað til einhver hoppar ofan á næsta mann.
2. Syngja fyrir hana. Helst eitthvað sem endar á "hey!" eða "húrra!" eða ámóta upphrópun. Og að sjálfsögðu alveg upp við eyrað, svo sönglistin komist ómenguð til skila.
3. Labba á bakinu á henni. Ég meina, er það ekki gert í nuddi?
4. Bora sér undir sængina og tilkynna: "Langar líka líður illa höfuðverk". Samhygðin er alger.
5. Tilkynna með stolti að þú hafir veitt flugu. Endurskapa atburðinn með leikrænum tilþrifum: "Og svo sló ég hana bara svona [HÁTT KLAPP] og náði henni!" Best að gera þetta alveg upp við eyrað líka, veikar mömmur eru áreiðanlega örlítið heyrnardaufar.
6. Færa henni tuskudýr. Lágmark átta. Lemja hana svo í hausinn með þeim ef hún sýnir ekki tilhlýðilegt þakklæti.
7. Færa henni mat í rúmið. Helst kex eða annað sem mylst þægilega niður.
8. Gefa henni nokkur roundhouse kick á vel valda staði milli herðablaðanna. Er það ekki einhvers konar nuddtækni líka? Eða kannski bara jákvæð mótivering svo hún komist sem fyrst á lappir?
Ljúft að vera svona innilega elskuð...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli