Síður

mánudagur, 27. júlí 2015

Sögustund

Þegar bækur eru skoðaðar gegnum augu þeirra næstum því tveggja ára, sem hafa meiri áhuga á að segja söguna en hlusta á hana kemur ýmislegt nýtt í ljós.

Ekki byrjar það nú gæfulega: "Ó nei! Api taka Jagó* [ljónsungann]. Pabbimamma** langt í burtu, Jagó hræddur, Jagó detta!" 

...ja, að sjálfsögðu er þetta ill meðferð, hvaða smábarn vill að einhvern ókunnugan apa mæta og sveifla sér fram af bjargbrún meðan foreldrarnir standa sallaróleg hjá? 


Eina ánægjulega stundin í bókinni að mati lítilla lesenda: "Núna gaman, mamma kitla ljónið."
Mamma: En sjáðu aumingja Púmba, er hann ekki svolítið hræddur við ljónið?
"Nei nei grísinn minn, ekki hræddur, bara fastur" (æj já, hverjum var ekki sama um Púmba hvort eð er?) 


...en svo kárnar gamanið þegar hinn illi Rafiki mætir aftur á svæðið: "Vondi apinn, ljónið hræddur!" Já, er hann ekki frekar illilegur eitthvað á þessari mynd? 


Og ekki tekur svo betra við á loka opnunni: "Jagó detta vatnið! Krókódíll!" 
Mamma: Nei er þetta ekki bara geit?
 "Nei nei, detta krókódílinn! Skamm api!"...já, hvað er þessi apa skömm alltaf að stela smábörnum og stofna þeim í stórhættu? 

Rafiki er klárlega nýja illmennið í Lion King. 

--------------------

*Jagó mun dregið af "litli jagúar" sem er sidekickið hans Diego.
**Þórey Vala er sammála Ara Eldjárn um að það sé kominn tími á að búa til hugtak sem nær yfir báða foreldra - eitt ofur foreldri - og er afar hrifin af kollektíva heitinu pabbimamma.  

þriðjudagur, 14. júlí 2015

Svo kyssum við cisgender normið bless

Síðastliðna 3-4 mánuði hefur barnið mitt verið Pokémon. Ef ekki Pikachu, þá Togepi, eða Bulbasaur eða Charmander eða Charizard eða Squirtle. (Og já, ég þurfti að googla þetta allt til að klúðra ekki staðsetningunni og gera mig að fífli fyrir nördakrádinu mínu, og slást síðan við autocorrect um stafsetninguna á því öllu). Með hverjum deginum reynir meira á þolinmæðina að halda andliti og svara með jákvæðni þegar leikurinn hefst: "Má ég vera Pokémoninn þinn? Vilt þú vera xxx sem á mig og ég verð xxx Pokémon? Hvaða Pokémon er ég núna? Þú verður að giska! Mamma! Af hverju veistu ekki hver ég er!?"

En mitt í öllu þessu kemur maður alltaf auga á eitthvað nýtt. Getraun dagsins snerist um Jigglypuff, sem ku vera einhvers konar bleikur sykurpúði. Og þessi fígúra og Kirby (úr samnefndum tölvuleik) eru víst ekki frændur (eins og fávísa mamman stakk upp á) heldur "systrabræður" enda: "Sko Jigglypuff er ekki strákur eða stelpa, bara svona lítið mjúkt ský sem kann að syngja" og Kirby "er bara svona kúla, eins og tyggjókúla" og getur þess vegna augljóslega hvort sem er verið strákur eða stelpa, eða kannski bara hvorugt, og þar af leiðandi er augljóst að þeir/þær eru hvorki systur né bræður, heldur systrabræður. Auðvitað.


Og svo þegar hárlokkur festist við varirnar á manni yfir kvöldmatnum þá fá litlar stúlkur skegg og verða "alveg eins og hún í Eurovision" eða kannski bara kall með sítt hár í Frozen kjól.

Framtíðin er fallega óskilgreind.

fimmtudagur, 2. júlí 2015

Rigning

Það glymur í hausnum á mér eins og tómri blikkdós. Óhreina leirtauið og brauðmylsnan á gólfinu endurkasta nöldrandi röddum sem hanga í buxnaskálmunum mínum svo öll íbúðin verður að bergmálshelli: Ma-ma-ma-ma-ma-ma-ma-ma..... ÚT! Út með ykkur allar, ekki seinna en strax! Kvöldmaturinn verður eftir á borðinu, eitt kex á mann í eftirmat, koma svo, allir í föt, volandi og tuðandi. Út, út, út!

Það byrjar að rigna þegar við stöndum í dyrunum. Rigningarniðurinn þægilegur dempari, skrækir og klögur svífa upp í himinn og leysast upp í grámanum. Áfram svo, allir út á leikvöll, þrír litlir andarungar í einni röð, ekki of langt á undan, enginn má verða eftir, áfram nú, einn, tveir, þrír. Rigningin skolar burt bergmálið og undan því birtast þrjár litlar ævintýramanneskjur; söguhetjur í þess konar ævintýri þar sem bifukollurnar eru töfraduft, uppslitin blóm í úfnu hári kalla fram álfaprinsessur og óræktaleg beðin milli göngustíganna jafnast á við mestu frumskóga heimsins.

Þá er bara eftir að fá alla til að samþykkja heimferð á sama tíma!