Síðastliðna 3-4 mánuði hefur barnið mitt verið Pokémon. Ef ekki Pikachu, þá Togepi, eða Bulbasaur eða Charmander eða Charizard eða Squirtle. (Og já, ég þurfti að googla þetta allt til að klúðra ekki staðsetningunni og gera mig að fífli fyrir nördakrádinu mínu, og slást síðan við autocorrect um stafsetninguna á því öllu). Með hverjum deginum reynir meira á þolinmæðina að halda andliti og svara með jákvæðni þegar leikurinn hefst: "Má ég vera Pokémoninn þinn? Vilt þú vera xxx sem á mig og ég verð xxx Pokémon? Hvaða Pokémon er ég núna? Þú verður að giska! Mamma! Af hverju veistu ekki hver ég er!?"
En mitt í öllu þessu kemur maður alltaf auga á eitthvað nýtt. Getraun dagsins snerist um Jigglypuff, sem ku vera einhvers konar bleikur sykurpúði. Og þessi fígúra og Kirby (úr samnefndum tölvuleik) eru víst ekki frændur (eins og fávísa mamman stakk upp á) heldur "systrabræður" enda: "Sko Jigglypuff er ekki strákur eða stelpa, bara svona lítið mjúkt ský sem kann að syngja" og Kirby "er bara svona kúla, eins og tyggjókúla" og getur þess vegna augljóslega hvort sem er verið strákur eða stelpa, eða kannski bara hvorugt, og þar af leiðandi er augljóst að þeir/þær eru hvorki systur né bræður, heldur systrabræður. Auðvitað.
Og svo þegar hárlokkur festist við varirnar á manni yfir kvöldmatnum þá fá litlar stúlkur skegg og verða "alveg eins og hún í Eurovision" eða kannski bara kall með sítt hár í Frozen kjól.
Framtíðin er fallega óskilgreind.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli